Félag foreldra og aðstandenda samkynhneigðra hafa það að markmiði sínu að auðvelda foreldrum og öðrum aðstandendum homma og lesbía að hitta aðra í sömu stöðu, nálgast upplýsingar um fræðslu og stuðning og efla sýnileika aðstandenda í samfélaginu. Félagið heldur reglulega fundi í húsnæði Samtakanna ´78 á Laugavegi 3 og á vefsíðu félagsins eru allar nánari upplýsingar um starfsemina. Þar er einnig hægt að komast á póstlista og komast í sambandi við fólk í félaginu. FAS hefur einnig lagt mikið af mörkum til samræðunnar við þjóðkirkjuna og presta landsins um mannréttindi samkynhneigðra, og staðið fyrir opnum ráðstefnum og útgáfu um þau efni. Á vefsíðu FAS er að finna allar nánari upplýsingar um félagið.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu FAS
Á Akureyri: Á vegum FAS starfar sérstök deild á Akureyri og fundar annan fimmtudag í mánuði yfir veturinn. Fundirnir er u haldnir á Sigurhæðum og hefjast kl. 20. Nánari upplýsingar um starf deildarinnar er að finna á vefsíðu FAS og vefsíðu Norðurlandshóps Samtakanna ´78.







Foreldrar og aðstandendur


