Greiðandi félgsmenn í Samtökunum '78 njóta afsláttarkjara og fríðinda hjá ákveðnum aðilum sem stjórn Samtakanna '78 kann bestu þakkir fyrir samstarfið. Ef þú vilt gerast félagi í Samtökunum geturðu gert það hér. Til að geta nýtt sér sérkjörin þarf að framvísa félagsskírteini. Þau má nálgast, að greiðslu lokinni, á skrifstofu Samtakanna '78 sem er staðsett á Laugavegi 3, 4. hæð. Skrifstofan er opin virka daga kl. 13-17. Þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins eða sjá sér ekki fært að sækja skírteinið af öðrum ástæðum eru beðnir um að hafa samband við okkur skrifstofa@samtokin78.is eða sími: 552-7878). |