Ungliðahópurinn er ætlaður hinsegin ungmennum á aldrinum 14–20 ára og tilgangur hans er að skapa og styrkja félagsleg tengsl milli þeirra. Hópurinn hittist vikulega, hvert sunnudagskvöld og gerir eitt og annað skemmtilegt saman. Andrúmsloftið er mjög svipað og í venjulegum félagsmiðstöðvum eða nemendafélögum. Fundirnir byrja klukkan 19:30 og fara fram félagsmiðstöð Samtakanna '78 að laugavegi 3, 4 hæð (gengið inn úr portinu).