
Navi Pillay Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna skrifar:
Seth Walsh var þrettán ára gamall þegar hann hengdi sig í garði heimilis sins í Tehachapi í Kaliforníu í síðasta mánuði. Hann hafði mátt sæta þola stríðni og árásir sökum kynhneigðar sinnar bæði í skólanum og hverfinu. Hann var í hópi sex táninga í Bandaríkjunum sem sviptu sig lífi í september vegna ágengni hatursmanna samkynhneigðra.








Í mánuðinum sem leið vakti það töluverða athygli vestan hafs að Barack Obama Bandaríkjaforseti ítrekaði gefin kosningaloforð sín um að afnema kindarlega lagasetningu Bills Clintons forvera síns frá 1993 sem mismunar samkynhneigðu fólki að þjóna í Bandaríkjaher, flota, flugher og landhelgisgæslu. Orðin „ég mun afnema Don‘t ask, don‘t tell, því lofa ég ykkur“ lét Obama forseti falla í formlegu boði hjá einu af réttindabaráttufélögum samkynhneigðra þar vestra, hinu sk. Human Rights Campaign kvöldið fyrir mikla kröfugöngu trans, sam- og tvíkynhneigðs fólks í höfuðborginni Washington, D.C. þann 11. október síðastliðinn.
Helgina 24. – 25. nóvember 2007 sótti ég þing þýsku foreldrasamtakanna BEFAH (
Nicuragua mun brátt fella úr gildi lög sem banna mök fólks af sama kyni, en við slíku "broti" hefur legið allt að þriggja ára fangelsi. Skemmst er að minnast þess að Verndarvættirnar, undir alþjóðlegri forystu Amnesty International, beindu spjótum sínum sérstaklega að Nicaragua nú á haustdögum fyrir að ganga gegn ýmsum ákvæðum í alþjóða mannréttindalögum. Vættirnar gengu í þessu augnamiði á fund Margrétar S.Björnsdóttur ræðikonu Nicaragua á Íslandi, afhentu henni mómælaskjal til þarlendra stjórnvalda og kröfðust afnáms sódómalaganna.
Vopnuð giftingarhring og háum hugsjónum marserar Kanako Otsuji inn á þing í Japan þessa dagana og er þar með fyrsti opinberlega samkynhneigði þingmaður landsins. Markmið hennar er aðeins eitt: Að breyta gangi sögunnar. Fyrr í sumar giftist Kanako unnustu sinni til fjögurra ára, Maki Kimura, á Gay Pride hátíð í Nagoya, Japan. 

