Ráðgjöf Samtakanna ’78 bíður upp á einstaklingsviðtöl, paraviðtöl, fjölskylduviðtöl og hópastarf. Ráðgjafarnir hafa mikla reynslu af því að ræða við samkynhneigða, tvíkynhneigða og aðstandendur þeirra ásamt því að hafa fjölbreytta reynslu af vinnu með öllum aldurshópum bæði í einstaklingsvinnu og hópavinnu.
Boðið er upp á klukkutíma viðtal í 2-3 skipti í senn og eru viðtölin ókeypis. Öll viðtöl og persónuleg símtöl eru trúnaðarmál. Einnig er boðið upp á lokað hópastarf sem er auglýst sérstakega áður en hópur fer í gang.
Aðstandendum samkynhneigðra stendur þessi þjónusta líka til boða. Ráðgjöf sinna þær Anni G. Haugen og Guðbjörg Ottósdóttir félagsráðgjafar og Sigríður Birna Valsdóttir leiklistarmeðferðarfræðingur.
Hafðu samband - það er fyrsta skrefið!
Til að taka fyrsta skrefið og geta rætt um líðan sína og tilfinningar er gott að geta átt möguleika á að ræða við einhvern sem bæði hefur verið í sömu sporum og hefur einnig mikla reynslu af því að styðja við einstaklinga sem eru að takast á við breytta kynhneigð og/eða kynímynd. Hægt er að panta viðtal hjá ráðgjafa eða fá frekari upplýsingar um ráðgjöfina með því að hringja á skrifstofu Samtakanna78 í síma 552-7878 eða senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.









