Á vettvangi Samtakanna ´78 sameinast fólk um hugðarefni sín og áhugamál í margs konar hópum. Sumir hóparnir eru formlega hluti af Samtökunum ’78, svo sem Norðurlandshópurinn, ungliðahópurinn og bókasafnshópurinn, en auk þeirra eru starfandi ýmsir hópar og félög sem ekki eiga bein tengsl við Samtökin ´78 en nýta sér gjarnan þá aðstöðu sem Samtökin bjóða upp á í samvinnu við stjórn og framkvæmdastjóra. Samtökin ’78 leitast þannig við að eiga gott og náið samstarf við önnur félög samkynhneigðra og tvíkynhneigðra og styðja þau til góðra verka. Hafðu samband í síma 552 7878 ef þú vilt vita meira.
Starfshópar á vettvangi Samtakanna '78 og sjálfstætt starfandi hinsegin félög
- Ungliðahópur starfar innan Samtakanna '78 og er ætlaður samkynhneigðum og tvíkynhneigðum ungmennum á aldrinum 14–20 ára. Ungliðarnir hittast hvert sunnudagskvöld klukkan 20.00 í húsnæði Samtakanna ´78. Hópurinn er á Facebook.
- Norðurlandshópur ungliða. Á Akureyri starfar ungliðahópur samkynhneigðra og tvíkynhneigðra ungmenna og hittast þau alla fimmtudaga klukkan 20 í Rósenberg, félagsmiðstöð framhaldsskólanema á Akureyri.
- Verndarvættirnar eru samstarfsvettvangur félaga í Amnesty International og Samtökunum '78 um aðgerðir í málefnum er varða mannréttindi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks. KMK – Konur með konum er félagsskapur lesbía sem stendur fyrir öflugu starfi árið um kring. www.kmk.is
- AA-deild. AA-fundir fyrir samkynhneigða og tvíkynhneigða, konur og karla, eru haldnir á Laugavegi 3 hvert þriðjudagskvöld kl. 21–22. Fyrsti fundur mánaðarins er sporafundur.
- ÁST – Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf.
- FAS – Félag foreldra og aðstandenda samkynhneigðra hafa það að markmiði sínu að auðvelda foreldrum og öðrum aðstandendum homma og lesbía að hitta aðra í sömu stöðu, nálgast upplýsingar um fræðslu og stuðning og efla sýnileika aðstandenda í samfélaginu. www.samtokinfas.is
- FAS-N, Norðurlandsdeild Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, heldur fundi annan fimmtudag hvers mánaðar klukkan 20.00 í Oddeyrarskóla, gengið inn að norðanverðu. Fulltrúar úr stjórn FAS-N eru til viðtals á sama stað hálftíma fyrir fund.
- Norðurlandshópur Samtakanna´78, skammstafað S78N, eru samtök samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks á Norðurlandi. Hópurinn hefur aðsetur á Akureyri. http://s78n.bloggar.is
- HLDI - Samtök heyrnarlausra lesbía og homma. HLDI eru sjálfstæður félagsskapur með það að markmiði að standa vörð um réttindi og baráttumál samkynhneigðra heyrnarlausra og skapa góðan vettvang fyrir félagslíf.
- Hinsegin dagar eru sjálfstætt félag sem sér um að undirbúa hinsegin hátíðahöld sem haldin eru aðra helgi í ágúst á hverju ári með glæsilegri gleðigöngu og útihátíð. www.gaypride.is.
- Q - Félag hinsegin stúdenta er hagsmuna- og skemmtifélag stúdenta við Háskóla Íslands og annarra skóla á háskólastigi. MSC Ísland var stofnað árið 1985 og er einkaklúbbur karlmanna sem eru fyrir leður, gúmmí, einkennis- og gallaföt og leggja mikið upp úr góðum félagskap. www.msc.is
- Trans-Ísland er félag transgender fólks á Íslandi. http://groups.google.com/group/trans-is-frettabref, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .









