• default color
  • blue color
  • orange color
  • green color
JA Control Panel

Samtökin 78

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Framboðsfrestur framlengdur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Kjörnefnd Samtakanna ´78 tilkynnir framlengdan framboðsfrest til stjórnar og trúnaðarráðs Samtakanna ´78. Einnig er auglýst eftir framboðum til skoðunarmanna reikninga. Nýr framboðsfrestur rennur út kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 15. mars. Ástæða þess að framboðsfrestur hefur verið framlengdur er sú að kjörnefnd hefur ekki borist framboð til embættis ritara félagsins og telur kjörnefnd það skyldu sína að tryggja framboð  til allra embætta stjórnar.


Vakin er athygli á veigamiklum breytingum á lögum félagsins um hvernig kosið er til stjórnar Samtakanna ´78 og eru félagsmenn hvattir til þess að kynna sér þessar breytingar. Breytingarnar sem og lög félagsins í heild má finna á eftirfarandi vefslóð: http://www.samtokin78.is/index.php?option=com_content&view=article&id=29&Itemid=91
Sérstök athygli er vakin á því að ekki er lengur stillt upp framboðslista við kjör til stjórnar Samtakanna heldur er nú um einstaklingskosningu að ræða og skal frambjóðandi tilgreina hvaða embætti stjórnar viðkomandi sækist eftir. Við kjör í trúnaðarráð er einnig viðhöfð einstaklingskosning.
Framboð til stjórnar og til trúnaðarráðs skulu hafa borist á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eigi síðar en kl. 12 á hádegi mánudaginn 15. mars 2010. Þetta netfang er varið gegn ruslpóstþjörkum.
Í framboðstilkynningu skulu frambjóðendur leggja fram upplýsingar um til hvaða embættis viðkomandi býður sig fram auk þess að láta fylgja stutt æviágrip. Framboðin verða auglýst á heimasíðu Samtakanna ´78 síðustu dagana fyrir aðalfund og fá frambjóðendur tækifæri til þess að kynna sig og sín stefnumál á síðunni.

- Kjörnefnd Samtakanna ´78

 

Vissir þú?

Þarftu að spyrja erfiðra spurninga? Pantaðu viðtal hjá ráðgjafa, það er oft fyrsta skrefið í rétta átt!

Deila með vinum!


buy viagra |