Ungliðahópurinn er ætlaður hinsegin ungmennum á aldrinum 14–20 ára og tilgangur hans er að skapa og styrkja félagsleg tengsl milli þeirra. Hópurinn hittist vikulega, hvert sunnudagskvöld og gerir eitt og annað skemmtilegt saman. Andrúmsloftið er mjög svipað og í venjulegum félagsmiðstöðvum eða nemendafélögum. Fundirnir byrja klukkan 20 og fara fram félagsmiðstöð Samtakanna '78 að laugavegi 3, 4 hæð (gengið inn úr portinu).
Hvað gerum við?
Fyrst og fremst viljum við kynnast hvert öðru, búa til góðan félagsskap og mynda vináttubönd. Þá bjóðum stundum til okkar gestum úr þjóðfélaginu til að ræða spennandi málefni, stundum höfum við boðið foreldrum okkar í heimsókn, og við höldum videókvöld, förum í útilegur og höldum árshátíð og margt fleira. Það er okkar sjálfra að móta dagskrána með umsjónarfólki hópsins. Einnig tökum við þátt í starfi Samtakanna ´78, m.a. höfum við sagt frá lífi okkar á fræðslufundum í skólum, og við tökum virkan þátt í undirbúningi Hinsegin daga. Það getur tekið hálft ár að búa til gott atriði í gleðigönguna. Svo vinnum við að gerð kvikmyndar um okkur sjálf.
Stjórn ungliðahópsins veturinn 2008–2009 skipa Guðný ósk, Íris og Andri Freyr og sjá þau um að skipuleggja dagskrá og halda utan um ungliðakvöldin. Þeim til halds og trausts eru Haukur Árni Hjartarson meðlimur í Trúnaðarráði Samtakanna '78 og Elín Sveinsdóttir meðlimur í stjórn Samtakanna '78.
Stjórn ungliðanna sértil þess að starfið fari vel og lýðræðislega fram, að engum sé haldið utan við hópinn og að tekið sé vel á móti öllum sem koma á ungliðakvöldin á sunnudögum, enda er markmið okkar bæði ófrumlegt og ofsalega gamaldags: Að láta öllum líða vel saman!
Af hverju að koma á ungliðafund?
Það er talsvert átak fyrir okkur öll að koma út úr skápnum, segja foreldrum okkar og fjölskyldu frá því að við séum samkynhneigð en þegar við lítum til baka þá furðum við okkur oft á því af hverju við kviðum svona voðalega fyrir því að segja þeim fréttirnar því að okkar nánustu tóku þessu miklu betur en við bjuggumst við.
Sama er að segja um vini okkar og félaga. Stelpurnar og strákarnir í vinahópnum verða í fyrstu svolítið hissa og ringluð þegar þau fá fréttirnar en átta sig fljótt enda hafa þau flest lært að samkynhneigðum ber að sýna sömu virðingu og öllu öðru fólki. Við erum sömu manneskjurnar og áður en við sögðum þeim fréttirnar.
Erfiðast af öllu er samt sú staðreynd að við þekkjum nánast enga aðra í sömu sporum um það bil sem við erum að pæla í málunum, við þekkjum yfirleitt ekki aðra homma eða aðrar lesbíur. Við þurfum að leita þeirra og kynnast þeim til að að láta okkur líða vel. Það er einmitt þess vegna sem hittumst við í ungliðahópnum – til þess að fá tækifæri til að kynnast öðrum samkynhneigðum á sama aldri, til þess að hitta aðra með sömu reynslu og læra að láta okkur líða vel með þeim. Við þurfum líka að venjast okkur sjálfum í hópi lesbía og homma.
Fræðumst sjálf og fræðum aðra
Til þess að láta sér líða vel sem samkynhneigð manneskja er nauðsynlegt að skilja hvað í því felst að lifa sem lesbía eða hommi. Við þurfum með öðrum orðum að fræðast um það líf sem bíður okkar. Á bókasafni Samtakanna ´78 er hægt að fá lánaðar bækur og kvikmyndir sem lýsa reynslu okkar. Það er líka til kvikmynd á myndbandi sem lýsir lífi og reynslu samkynhneigðra unglinga. Hún heitir Hrein og bein. Ef hún er ekki til á skólabókasafninu þá skuluð þið biðja kennara ykkar eða skólabókavörð um að kaupa hana.
Hafðu samband í síma 552 7878 ef þú vilt vita meira eða með því að senda ungliðahópnum tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .










