| Spiladeild Styrmis |
|
|
Frá sunnudagur, 5. apríl 2009 Til mánudagur, 31. maí 2010 20:00 - 23:00 Fimmtudagur hvers Viku |
|
|
|
Bridge-deild Styrmis tók nýverið til starfa við góðar undirtektir. Deildin er vettvangur allra þeirra sem hafa gaman að spilum hvers konar. Bridge verður í kastljósinu fyrst um sinn og mun Hafsteinn Þórólfsson sjá um að leiðbeina byrjendum. Lögð er áhersla á að allir geti haft gaman af æfingunum, sama hvort þeir eru gamlar kempur eða að stíga sín fyrstu skref. Við hvetjum allt spilaáhugafólk til að mæta og taka mér sér félaga. Þótt "deildin" sé nefnd í höfuðið á bridge er sjálfsagt að leggja stund á önnur spil, Trivial Pursuit, Lomber, Catan, Risk, Skrabbl, félagsvist, AD&D og svo mætti áfram telja. Sannt spilaáhugafólk ætti því ekki að láta þetta spilatækifæri framhjá sér fara. Deildin kemur saman til æfinga hvern fimmtudag kl. 20 í húsnæði Samtakanna 78, Laugavegi 3. Við hlökkum til að sjá ykkur Nefndin= |
Staðsetning: Fífan í Kópavogi
Tengiliður: www.ststyrmir.is |
Aftur
|